Steinteppi.is sérhæfir sig í lausnum á gólflögnum og þá sérstaklega steinteppi og Epoxy efnum. Hægt er að velja um margar gerðir af litum og grófleika af gólflögnum eftir því hvað við á í hvert og eitt skipti.
Þegar við tölum um iðnaðargólf er átt við fúgulaust gólfefni fyrir matvæla-, iðnaðar- og þjónustustarfsemi sem uppfyllir ströngustu kröfur með tilliti til hreinlætis og aðstöðu á vinnustað. Um er að ræða margar gerðir gólfefna, yfirleitt epoxy eða polyurethan bundinna, með lokuðu yfirborði, miklu kemísku efnaþoli og jafnvel miklu hitaþoli, allt eftir sérþörfum þeirrar starfsemi sem á að fara fram á gólfinu. Að baki SteinTeppi.is býr mikil þekking og reynsla síðastliðin 20 ár.
Sendið endilega fyrirspurnir eða óskir um sýnishorn / prufur af þeim gólfefnum sem er verið að spá í á steinteppi@steinteppi.is
Framkvæmdarstjóri
Guðmundur Fr. Matthíasson |